28.4.2008 | 12:31
Róleg helgi
Helgin var róleg og ljúf en því miður var Anna veik eftir allan sönginn og undirbúninginn. Jökull var hjá okkur um helgina og við fórum saman á Skilaboðaskjóðuna í Þjóðleikhúsinu í gær. Hörku gaman.
Lagaði aðeins til í garðinum og við grilluðum og grilluðum.
Er að fara í enn eina viðskiptaferðina í fyrramálið ( nótt ). Þær geta nú verið þreytandi þessar ferðir og nú t.d. erum við að fara með kúnna á leik Man United - Barcelona í Meistaradeildinni, alveg ótrúlega þreytandi ... Kem aftur heim á fimmtudag þannig að ég næ einum degi í London sjálfri. Mínum fyrsta degi í London, belífitornot. Þeir spá að vísu hundleiðinlegu veðri, stormi og rigningu og eru jafnvel með viðvaranir í gangi.
Ég læt það eins og storm um eyrun þjóta og ætla mér að njóta lífsins í London. I say, I will have a jolly good time over there, it will be absolutely marvellous. Splendid even !
Chiao old chap !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)