13.3.2009 | 16:31
Sjálfstæð hugsun ?
Hvernig má það vera að flokkurinn sem fyrst og fremst kom okkur Íslendingum á kaldan klaka með frjálslyndis sjónarmiðum, trausti á þá unglinga sem þeir fólu í hendur allt fjármálakerfi Íslands og ekkert eftirlit með þeim skuli enn í dag vera stærsti stjórnmálaflokkur Íslands.
Halló Íslendingar, er ekki allt í lagi ??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2009 | 13:33
Helgin
Á frí í kvöld, ætla bara að búa til einhvern góðan kjúklingarétt handa okkur Önnu og drekka smá vín með. Ætla samt fyrst í heimsókn í Selvaðið að sjá litlu kjúklingana mína á eftir.
Skólinn í fyrramálið og heimsókn í Borgarleikhúsið vegna lokaverkefnis. Síðan ætla ég að passa litla prinsessu sem heitir Hekla Guðbjörg á laugardagskvöldið. Aleinn því Anna er að fara í Óperuna.
Sunnudagurinn verður svo vafalítið notaður í útivist og hugsanlega að hitta góða vini
Chiao for now og góða helgi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)