11.4.2007 | 09:36
Moi, tölvusnillingur!
Hvað get ég svo sem sagt,,, fyrsta bloggfærslan mín kom sem athugasemd við fyrstu bloggfærsluna mína sem var engin ! Bið fólk um að líta á þessa athugasemd sem bloggfærslu ...
Tengdapabbi minn elskulegi varð sjötugur í gær með pompi og prakt. Vildi að vísu lítið gera úr því enda lítillátur maður. Anna, hins vegar, smalaði saman börnum og barnabörnum og öll mætti hersingin, sem að vísu taldi ekki nema 9 manns, á Caruso til kvöld snæðings. Virkilega kósý stund þar sem fjölskyldan var að hittast öll í fyrsta skipti í 3 ár af sérsökum ástæðum. Ágætur matur og fallegt umhverfi. Tengdamamma var illa fjarri góðu gamni þar sem hún er á spítala sem stendur en var í beinu sambandi í gegnum nýjan gsm síma sem tengdapabbi fékk í afmælisgjöf.
Frekar þreyttur í morgun þegar ég vaknaði með smá hálsbólgu og kvef, þarf að fara að komast í heiara loftslag. Klæddi mig þó í jakka en geri ráð fyrir að þurfa að fara heim í dag og sækja frakkann þar sem þeir spá riginingu og roki eftir hádegi. jibbí !
Setti inn mynd af fjölskyldunni litlu við sína venjulegu iðju,,, að smakka vín.
Athugasemdir
wow...byrja uppá nýtt þar sem ég skrifaði þvílíka rullu til þín í gær, semsagt athugasemd á athugasemdina...og þá kom bara einhver melding um það að ég væri of sein að gera athugasemdina og hver veit hvað varð um öll skrifin mín
. EN TIL LUKKU ELSKU BRÓI MINN MEÐ NÝJU SÍÐUNA ÞÍNA
Það verður gaman að fá að fylgjast með pennanum, orðum hans og hugsunum og bara frábært að leyfa okkur að skyggnast reglulega inní daglega lífið þitt....ekki hittumst við nú það oft. Lofjúsómöts elsku bró og enn og aftur til hamingju með framtakið. Þín litla sys ELsa
Litla sys Elsa (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 19:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.