21.1.2008 | 09:14
Róleg helgi
Þvílíkt hvað maður er afslappaður eftir helgina, svona eiga allar helgar að vera. Ekkert djamm, ekkert djús og fórum jafnvel í kirkju á laugardagskvöldið.
Við tókum að vísu góðan göngutúr til Írisar um klukkutíma sitthvora leið í þessu æðislega veðri og svei mér þá ef maður finnur ekki fyrir því í dag. Anna meira að segja fór í ræktina um morguninn þannig að það er alltaf nógur kraftur í henni.
Eitthvað virðist hafa frosið á nokkrum einstaklingum hér í bæ því nú á að fara taka gröf við hliðina á þjóðskáldunum sem liggja í vígðri gröf á Þingvöllum. Í gröfina skal leggja sjálfan Fisher skákmeistara sem unnið hefir til þess á sinni ævi að vera góður í skák. Skiptir engu máli þótt hann hafi komið illa fram við fólk, hafi verið hálf eða al geðveikur alla sína ævi. Nei, nú skal hann tekinn fram yfir alla þá snillinga sem dáið hafa síðan Jónas var og hét. Eigum við ekki að reyna að fá jarðneskar leyfar John Lennons líka og búa svona til frægðar kirkjugarð sem allir túristar geta skoðað á Þingvöllum. ? Ég spyr nú bara, er ekki allt í lagi ???
Eitt er nú að gera þennan mann að Íslendingi og annað að gera dýrðling úr honum.
Mikið er ég heppinn að hafa tekið þá meðvituðu ákvörðun að horfa ekki á íslenska landsliðið í handbolta
Athugasemdir
Úff já skil þig svo sem mjög vel að horfa ekki á þennan horror sem strákarnir hafa verið að spila.. allavegna varð ég alveg arfa vitlaus eftir leikinn í gærkvöldi. En einhvern hluta vegna verður maður að horfa á þá hehe..
Jamm og með sötrið úff þegar ég var á Íslandi þá var sko sötrað mikið... Var mikið gott að komast heim til sín og taka allt svoleiðis út.... leið rólegheita helgi hérna líka án alls áfegnis og sukkmat... love it.. stefni að taka nokkrar svoleiðis helgar í röð
maður var farin að sötra ansi mikið þegar maður er svona heimavinnandi húsmóðir og eins og menningin er hérna.. þá er ekkert tiltökumál að fá sér eins og eitt hvítt eða rautt á kvöldin.. Annars kveðja frá lubbecke Kristín frænka
Lubbecke mærin (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 21:22
Get ég fengið smá af þessaro orku hjá Önnu ? Ég er eitthvað svo rosalega löt eitthvað þessa dagana. Má alls ekki vera löt af því átakið "flott fyrir útskriftaveisluna" er byrjað..
love love
p.s. takk fyrir síðast Kristín :)
Íris (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.