Busy, busy busy.

Já það var nóg að gera um helgina og hæst bar að sjálfsögðu nemendatónleikarnir í Dómus Vox. Þar steig hver framtíðarsöngkonan á fætur annari á stokk og best af öllum var lillan mín hún Anna Birgitta. Tónleikarnir voru settir upp í mini óperu form með leik og búningum og var yndisleg skemmtun.

Laugardagurinn var annars undirlagður af atburðum frá því snemma um morguninn þangað til 3.30 um nóttina Sleeping Maður er orðinn svo gamall að það er erfitt að sofa út á morgnana svo við vorum mætt í ræktina snemma um morguninn. Svo voru tónleikarnir í framhaldi og ég keypti þetta fína folaldakjöt og sá fyrir mér rólegt og rómantískt kvöld, en nei. Inga Klemma hringdi í mig og bauð okkur í útigrill ásamt Siggu H og auðvitað er ekki hægt að segja nei við slíkum félagsskap. 8 klst og 5 rauðvínsflöskum síðar vorum við svo loksins komin heim til okkar.

Vöknuðum samt snemma og gegnum í Kópavoginn til að sækja bílinn, fórum svo í sund, síðan í Grafarvogskirkju þar sem var verið að ferma hana Anitu okkar, svo í smá heimsókn til Írisar og co, síðan í fermingarveislu á 19. hæð í turninum í Kópavogi. Æðislega flottur staður og frábær matur.

Við sem sagt eyddum ekki miklum tíma  í vitleysu en mikið hefði verið gaman að komast á skíði í þessu frábæra veðri. Kannski næstu helgi ...

Bara muna, glötuð stund er eitthvað sem kemur aldrei aftur ... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband