Nýja Ísland

Á tímum sem allir tala um nýja Landsbankann, nýja Glitnir, nýja Kaupþing o.s.frv. er kannski kominn tími til að velta fyrir sér nýja Íslandi.

Svei mér þá ef ég finn ekki fyrir einhverri breytingu, einhverri jákvæðri breytingu í fari Íslendinga. Dálitið eins og fólk sé meira með sér, spái í aðra hluti en venjulega og almennt meira á jörðinni. Hver veit nema þessar hörmungar sem á okkur dynja verði til þess að fólk átti sig á því að veraldleg gæði eru langtum lakari en andleg gæði. Kannski fara fjölskyldubönd og vinátta að skipta meira máli.

Vonandi, því hvað er betra en góður vinur ? Ég segi það nú af reynslu því ég á svo mikið af frábærum vinum. Lítið getað hitt þá undanfarið og sakna þeirra mikið.

Hvort sem þið trúið því eða ekki þá er ég að fara til Köpen á fimmtudagsmorgunn og kem ekki aftur fyrr en á sunnudag. Árshátíðarferð með vinnunni hennar Önnu. Fólk heldur náttúrulega að við séum klikkuð, nýkomin frá Prag og á leið til Köpen ! Var einhver að tala um gengið ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtið ykkur vel í Köben. Það er nú ekkert að því að fara þangað, ég hefði frekar sagt að þið væruð bilaðir áhættufíklar ef þið hefðuð verið að fra til London

Rannveig Árna (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 13:55

2 identicon

Elsku Addi , þarna hittirðu naglann á höfuðið. vinir og fjölskyldan eru dýrmætust.

njóttu morgundagsins með henni Önnu þinni, knúsaðu hana frá mér einn afmæliskoss, farðu svo ligeglad til Köben (drekktu bara annan hvern bjór :) ..

sjáumst vonandi bráðum. 

María Björk (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband