5.12.2008 | 10:00
Hættuleg heimska
Ég er náttúrulega frekar tregur og skil stundum ekki vora stjórnmálamenn. Hvernig Geir Haarde getur enn haldið því fram að Davíð sé ekkert að setja út á sig er mér algerlega hulið.
Davíð segir það berum orðum að hann hafi marg ítrekað varað stjórnarmenn/konur við því að allt væri að fara til fjandans og þeir skellt skollaeyrum við því. Þess vegna sé þetta allt þeim að kenna en ekki Davíð. Nú hafa nokkrir ráðherrar sagt að Davíð hafi ekki varað þá við og því liggur í augum uppi að hann hefur varað Geir Haarde við.
Hvernig í ósköpunum getur þá Geir haldið því fram að Davíð sé ekki að gagnrýna hann ? Hvernig geta fréttamenn "ekki" fengið Geir til að viðurkenna annað hvort að Davíð sé að ljúga eða að allt sé honum að kenna.
Spurningin sem fréttmenn eiga að spyrja er tvöföld:
Geir Harði, ég er með 2 spurningar: Er þetta rétt hjá Davíð að hann hafi varað ykkur við hruninu eða er hann að ljúga ? Svarið hlítur að vera að hann sé ekki að ljúga enda þyrfti Geir þá að setja hann af.
Í framhaldi er seinni spurningin þá einföld: Geir, er þetta þá ekki þér og þínum að kenna þar sem þið skelltuð skollaeyrum við aðvörunum ?
Ég trúi því tæplega að Geir sé svo heimskur að hann sjái ekki hið auðsjáanlega eins og allir aðrir og ef svo er....þá erum við í vondum málum. Það er hættuleg heimska fyrir Íslendinga.
Athugasemdir
Við eigum aldrei eftir að fá svar við þessu..
Í besta falli fáum við svör eins og "tja þetta er nú svo flókið og bla bla" eða "sagði og ekki sagði, á svona tímum verðum við öll að standa saman og bla bla"
Love
Íris (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 13:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.