26.1.2009 | 09:00
Skilum bankakreppunni
Nú virðsit stefna í að flestir fái ósk sína uppfyllta og stjórnin fari frá völdum. Á kantinum bíða þá snillingar í röðum sem vilja bjarga okkur frá glötun. Vinstri Grænir vilja skila Alþjóða láninu okkar og þá geri ég ráð fyrir því að þeir skili í kjölfarið bankakreppunni eins og hún leggur sig til fyrri eigenda því ég skil ekki hvernig við komumst út úr henni með ekkert lánsfé.
Það er svo sem tímabært eð menn taki á sig ábyrgð og segi af sér, það er algerlega ljóst. En hvað fylgir í kjölfarið er alls ekki ljóst. Það er jafnvel frekar dökkt.
Athugasemdir
Góð hugmynd að skila bankakreppunni ég skil ekki af hverju engum hefur dottið það í hug fyrr. Heyrðu gæskur, verður þú ekki í framboði til Alþingis í vor????????
Rannveig Árna (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 09:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.