12.2.2009 | 12:53
Vetrarhátíð
Ómægod, nú er Vetrarhátíðin að ganga í garð í Reykjavík og hvílík hátíð ! Það er svo þéttskipuð dagskrá alla dagana að mjög auðvelt er að fá magasár af valkvíða.
Því er hins vegar ekki til að dreifa hjá mér því ég verð í skólanum mest allan daginn á morgun og þarf eitthvað að læra á sunnudeginum. Er með 2 hópverkefni í gangi ...
Það mun samt sem áður ekki aftra mér frá því að sækja eitthvað af þessu svona inn á milli því ég elska list og listamenn. Maður hefur alltaf tíma eða eins og gamalt kínverskt máltæki segir: Ef þú vilt fá eitthvað gert biddu þá einhvern sem hefur nóg að gera.
Ég skora á alla þarna úti að notfæra sér þessa dásamlegu hátíð og næra hugann.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.