Heineken auglýsingar

Datt í hug að setja hér inn 2 flottar auglýsingar, ég er jú að læra um það þessa dagana Wink

 

 http://www.youtube.com/watch?v=3M8Dp7wGBe4

 

http://www.youtube.com/watch?v=neoUi4poCXI

 


Glitnis glæpamenn

Nú er búið að loka öllu innláns sjóðum hjá Glitni og fólk á eftir að tapa heilmiklu af sparifé sínu hvort sem um er að ræða auka lífeyrissparnað gegnum Almenna Lífeyrissjóðinn eða venjulegan sparnað. Sem alþjóð veit og svo sem ekkert um það að segja.

Hins vegar opnuðu glæponarnir hjá Glitni sjóðina í klukkutíma um mánaðarmótin síðustu til þess að draga út af reikningum hjá þeim aðilum sem voru með samninga um mánaðarlegan sparnað og ugðu ekki að sér. Sem sagt sjóðirnir voru opnaðir að nóttu til í kannski klukkutíma til þess eins að ná í aura fólksins sem þegar var búið að tapa fullt af sínum sparnaði út af þessum sömu reikningum. Ef þetta er ekki þjófnaður þá veit ég ekki hvað þjófnaður er. Ef þetta er ekki siðlaust fólk þá veit ég ekki hvað siðleysi er. Hvar eru blaðamennirnir nú sem endalaust velta sér upp úr þessu ?

Anna var ein af þeim sem datt ekki í hug að það yrði áfram tekið af henni inn á lokaðan sparnaðareikning og lét liðið aldeilis heyra það þegar hún tók eftir að búið var að skuldfæra reikninginn sinn.  En svarið vara bara, já en við opnuðum fyrir sjóðina aðeins um mánaðarmótin. Vafalítið hafa þeir sem eru í klíkunni fengið að vita af þessu og getað notfært þessa tímabundnu opnun en við hin, eymingjarnir, við höldum bara áfram að tapa ..

Við höldum bara áfram að láta taka okkur í ..........


Hver er flottastur ?

nl-radherrar

Beljuhagfræði

 

SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.

KOMMÚNISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.

FASISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.

NASISMI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.

SKRIFRÆÐI

Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI

Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú.
Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein

SÚRREALISMI

Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.

BANDARÍSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.

ÍSLENSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.

FRANSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.

JAPANSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, "Kúmann", sem nær miklum vinsældum um allan heim.

ÞÝSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.

ÍTALSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar.
Þú ákveður að fá þér að borða.

RÚSSNESKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.

SVISSNESKT FYRIRTÆKI

Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.

KÍNVERSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.

INDVERSKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.

BRESKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki

ÍRASKT FYRIRTÆKI

Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...

ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI

Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.

NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI

Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg

 

 

 


Konungurinn

Jibbí ! Vetur konungur er mættur og ég fann kúrekastígvélin mín og fór í þau í morgun. Gleymdi svo sundskónum mínum í morgun og var eins og breakdansari þegar ég gekk á STÓRU saltkornunum í sundinu. Ég er eins og prinsessan á bauninni þegar kemur að iljunum á mér. Það er stórkostlegt að sjá mig á ströndinni á Spáni þegar ég þen brjóstkassann, held maganum inni og geng svo eins og kerling niður að sjó. Ó, Æ, ó ó ..Crying

Fór á æfingu á mánudaginn í nýja tvöfalda kvartettinum mínum og fer aftur í kvöld. Rosa gamanWhistling

 


Ábyrgðarleysi

Úti í geimnum ríkir algert þyngdarleysi og hlutir sem fara af stað á annað borð halda bara áfram sinni stefnu þangað til eitthvað stoppar þá. Að ég held.

Sama á við um bankakerfið á Íslandi. Hlutirnir fóru af stað og ekkert stoppaði þá. Þeir loksins stoppuðu þegar stóri hvellur kom. Þannig má segja að þyngdarleysi hafi einnig ráðið ríkjum hér hjá okkur Íslendingum undanfarin ár.

Það sem verra er, algert ábyrgðarleysi hefur líka ríkt á Íslandi og janfvel stóri hvellur stöðvar það ekki. Á Íslandi ber enginn ábyrgð á neinu, aldrei.

Stjórnmálamenn bera enga ábyrgð hvort sem þeir stela frá kirkju eða ríki, svíkja eða svindla. Þeir fá bara syndaaflausn.

Bankamenn bera enga ábyrgð þótt þeir hafi knésett íslenskt þjóðfélag og komið okkur á vonarvöl um ókominn tíma. Þeir fengu bara borgað fyrir vikið og það mikið.

Ríkisstjórnin ber enga ábyrgð þótt þeir hafi sofandi látið íslenska ríkið reka að feigðarósi. Þeir bara brosa og segja að nú þurfum við að standa saman, hafa gaman og spenna beltin.

Þingmenn bera enga ábygð þótt þeim sé treyst af þjóðinni til að stýra landinu á farsælan hátt. Þeir bara rífast yfir áfengisfrumvörpum, nektarstöðum, hvað á að kalla sig og öðru mikilvægari málum heldur en fjárhagi Íslensku þjóðarinnar. Segjandi án afláts " ég sagði það "

Forsetinn og Dorrit bera enga ábyrgð á glundroðanum heldur benda á lausnir eins og að endurnýta álpappírinn á heimilunum á Íslandi. Og setja mikilvægari málefni eins og framtíð Ríkisútvarpsins í þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Meðan venjulegir Íslendingar svífa um loftin í algeru þyngdarleysi vitandi ekkert um sína framtíð hvað þá barnanna sinna ber enginn ábyrgð. Á neinu.

Aldrei.

 


Léttum tilveruna

smá hlátur:

 

http://www.youtube.com/watch?v=PRiYkwtBK34&NR=1


Baunarnir

ekki veit ég svo sem af hverju Danir eru alltaf kallaði Baunar en gæti verið af því að þeir eru alltaf að bauna á okkur. Ég er nýkominn frá Danaveldi og hef ekkert nema gott um þá að segja. Hins vegar verðlagið, ó mæ god !

Aldrei áður hef ég farið í ferð þar sem mér leið eins og hinn danski Jóakim von Önd. Ég var alltaf að hrista budduna mína og sjá hvort hringlaði ekki aðeins í henni. Ég fór aldrei inn á kósí kaffihús til að fá mér einn tvöfalldan expressó því það kostaði mig um 800 kr per bollann. Ég hef aldrei drukkið jafn lítið af bór erlendis því hann kostaði þetta 1100 - 1200 kall. Ég þorði ekki einu sinni að kíkja í búðarglugga því ég bjóst allt eins við að vera rukkaður fyrir það.

Andersína mín var ekki par glöð með þetta og fannst óþolandi að geta ekki rápað í búðum. Við gátum ekki einu sinni keypt gjafir handa börnunum okkar þeim Rip, Rap og Rup því það hefði sett okkur á hausinn.  Set hér inn myndskeið af mér í Köpen . (http://www.youtube.com/watch?v=DGdAyMeCL1U)

Meira að segja hitagráðan er mun dýrari þarna úti því þrátt fyrir ágætt veður og 12° hita þá vorum við skjálfandi af kulda.Sick

Þetta var samt yndislegur tími og hótelið sem við vorum á í boði Línuhönnunar var sérlega glæsilegt. ( Skt Petri ) Árshátíðin glæsileg á laugardagskvöldið og ferðin öll til sóma fyrir eigendur Línuhönnunar. Takk kærlega fyrir mig.

Fórum í göngutúr um miðbæinn með Þorvaldi Flemming sem fararstjóra og hann var sérstaklega fróður og skemmtilegur. Gengum sjálf mikið um og skoðuðum margt og skemmtum okkur alveg ágætlega þrátt fyrir allt.Smile Lögðum okkur á daginn og skoðuðum frímerkjasafnið vel þannig að í heild erum við bara vel dús við Kaupmannahöfn.


Ekki sama hvaðan gott kemur

Ég hlustaði á þær stöllu Agnesi Braga og Björgu Evu blaðamenn í morgunútvarpi Bylgjunnar í morgun. Það er kostulegt hvað hver getur þótt sinn fugl fagur.

Það var verið að ræða um aðfarir Gordons Brown gegn Íslendingum og Agnes Braga var alveg hörð á því að við þyrftum að sækja hann og Breska Ríkið til saka fyrir ömurleg og ærumeiðandi ummæli hans um Íslendinga. Held að þær eins og allir geti verið sammála um að hann hafi eingöngu gert þetta til bjargar sínu auma skinni þ.e. til að reyna að afla sér vinsælda meðal Bresku þjóðarinnar. Veitir honum svo sem ekki af greyinu.

Björg Eva var hins vegar göfuglyndið uppmálað og ekki á því að við ættum að vera gera veður út af slíkum smámunum heldur snúa okkur að framtíðinni. Ekki dvelja í fortíðinni.

Hins vegar hugnaðist henni ekki að horfa fram í tímann þegar kom að lánveitingu Rússa til Íslendinga því þá var allt annað uppi á teningunum. Þá var Rússum ekki treystandi frá fornu fari og henni var ekki sama hvaðan gott kæmi. Eitthvað dýpra á göfuglyndinu þar ...

Henni var hins vegar alveg sama hvaðan vont kom ....

Talandi um vont, veðrið í Köpen ætlar ekki alveg að leika við okkur næstu daga frekar en annað í þessu þjóðfélagi. Þeir spá rigningu flesta daga og læðist að mér sá grunur að þar hafi Danir haft hönd í bagga. Það hins vegar hentar ágætlega fyrir koju fyllirí Shocking 

Er að æfa mig á þýskunni fyrir ferðina, Ich möchtest ein kebap zu kaufen und ein klein bier night so teuer, bitte. Nein, Ich bin nicht ein islander ......


Nýja Ísland

Á tímum sem allir tala um nýja Landsbankann, nýja Glitnir, nýja Kaupþing o.s.frv. er kannski kominn tími til að velta fyrir sér nýja Íslandi.

Svei mér þá ef ég finn ekki fyrir einhverri breytingu, einhverri jákvæðri breytingu í fari Íslendinga. Dálitið eins og fólk sé meira með sér, spái í aðra hluti en venjulega og almennt meira á jörðinni. Hver veit nema þessar hörmungar sem á okkur dynja verði til þess að fólk átti sig á því að veraldleg gæði eru langtum lakari en andleg gæði. Kannski fara fjölskyldubönd og vinátta að skipta meira máli.

Vonandi, því hvað er betra en góður vinur ? Ég segi það nú af reynslu því ég á svo mikið af frábærum vinum. Lítið getað hitt þá undanfarið og sakna þeirra mikið.

Hvort sem þið trúið því eða ekki þá er ég að fara til Köpen á fimmtudagsmorgunn og kem ekki aftur fyrr en á sunnudag. Árshátíðarferð með vinnunni hennar Önnu. Fólk heldur náttúrulega að við séum klikkuð, nýkomin frá Prag og á leið til Köpen ! Var einhver að tala um gengið ?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband