Kílóin fjúka

72,2 kg stóð á viktinni í sundi í morgun sem þýðir að á 2 dögum hef ég losnað við 1,6 kíló. Eina sem ég gerði var að sleppa öllu sukki í gærkveldi og borða soðinn þorsk með sætri kartöflumús í kvöldmat. Ekkert mál, skil ekki hvað fólk er að væla .......

Hafnarfjarðarbrandari

Leikur atvinnubístjóra er að verða eins og einn langur hafnarfjarðarbrandari, má ekki milli sjá hvor er leiðinlegri. Nú er kominn nýr talsmaður þeirra, einhver Ágúst sem virðist alveg jafn gáfaður og sá síðasti.  " Ágúst segir að þrátt fyrir lokun í báðar áttir hafi bílstjórarnir hleypt neyðarumferð í gegn enda beinist ekki aðgerðir bílstjóra gegn þeim " Sem sagt, þessar heimskulegu aðgerðir beinast ekki gegn neyðarumferð heldur bara allri annari umferð, öllum öðrum vegfarendum. Ekki Ríkistjórninni, neeeeí, bara öðrum saklausum bílstjórum. Getur verið að það sé lokað í báðar áttir í ákveðnu líffæri þessara manna ?

Hvað ætla þessir menn að segja við ættingja mannsins sem hafði fengið hjartaáfall ef þessi töf hefur haft áhrif ? Í slíkum tilfellum skiptir hver sekúnda máli og þaðp tekur sko sinn tíma að færa slíkar bifreiðar frá til að helypa í gegn.

Svo er Ágúst hissa á því að þingmenn skuli ekki standa upp og styðja þessar hættulegu og ólöglegu aðfarir. Hvað get ég sagt ???

En þeir eru rétt að byrja segir þessi Hrói Höttur nútímans og nú þegar þeir hafa lagt vindmyllur Hafnfirðinga að velli má búast við því að Breiðhyltingar fái að kenna á því næst.

Viva la liberty, viva la stupidity !


mbl.is Mestu tafir hingað til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband