Gott símtal um hánótt !

Já, svei mér þá, við fengum frábært símtal kl. 4 í nótt. Vorum ekki einu sinni sofandi þar sem mikill spenningur hafði gripið um sig. Það er nú ekki á hverjum degi sem við erum með opinn síma á náttborðinu.

Sum sagt, Andri Már hringdi til að tilkynna okkur að lítil, mjög lítil telpa hafði komið í heiminn tuttugu mínútum fyrr. 11 merkur og 48 cm með að mér sýndist rautt hár og andlitið hennar mömmu sinnar.

Yndisleg lítil dúlla InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Til hamingju með nýja barnabarnið,

Sigurveig Eysteins, 28.2.2009 kl. 05:17

2 identicon

Innilegar hamingjuóskir og kveðja frá Egilsstöðum til litlu dömunnar. Margur er knár þótt hann sé smár

Rannveig Árnadóttir (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband