Dýrðlingarnir

Ég var að passa 2 lítil börn á laugardagskvöldið, Úlfar sem er 18 mánaða og Heklu sem er 2ja mánaða.  Mamma og Pabbi fóru á árshátíð. Þau voru bara yndisleg, Úlfar fór bara upp í rúm kl. 8 og sofbnaðui eftir smá tíma og lillan sofnaði í stólnum sínum stuttu seinna. Ég bara brosti mínu breiðasta og sendi sms í allar áttir til að monta mig. Svo vaknaði lilla og grét svo hátt að Úlfar vaknaði líka og ég tvísteig með hana í fanginu og Úlfar grátandi í rúminu sínu og vissi ekki mitt rjúkandi ráð.

Þá hringdi síminn og í honum var nágrannakona mín að segja mér að þakglugginn á baðinu hjá mér hafði fokið upp og skelltist fram og aftur. Snjókoman og rigningin áttu því greiða leið inn í íbúðina. Nú voru góð ráð dýr, Anna á Óperunni, foreldrarnir á perunni ( kannski ekki Íris Wink) og ég tvístígandi með 2 litla engla. Sem betur fer náði ég í Írisi sem hringdi í mömmu sína og hún kom og tók við af mér. Ég brunaði heim á leið og bjóst við að sjá íbúðina í rúst og vatn rennandi niður tröppurnar. En nei, það var bara allt í lagi nema það var opið upp til Sússa sem hefur örugglega séð til þess að ekkert kom fyrir. Ég náði að loka glugganum sem var stráheill og batt hann rækilega niður í rokinu.

Svo kíkti ég í heimsókn til Emmu okkar á sunnudeginum eftir að hafa hlustað á Kristján Jóhannson syngja 2 lög í Bústaðakirkju. Flottur karlinn.

Þannig var ég umvafinn dýrðlingum þesa helgi Halo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara brjálað að gera hjá afanum - en það er sko gott að eiga svona góða að.

Pabbi passaði minn gaur í dag meðan ég var í vinnunni því hann Bjarki Már minn er lasinn og pabbi hans í Ameríku - afar eru náttla bara bestir í heimi......

María (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband