21.5.2009 | 02:33
Tenging við umheiminn
Litla heimilið að Ásgarði 115 tengidist umheiminum í dag þegar við fengum langþráð netsamband í gegnum ljósleiðarann. Loksins en spurningin er þessi: Er það til góðs ?
Nú get ég sest hvenær sem er niður og fylgst með hörmungun heimsins,ég get sest niður hvenær sem er og bloggað um alls kyns málefni og öllu verra í hvers konar ástandi. Ég get verið reiður og svekktur og sett fram alls kyns hluti sem ég sé eftir, ég get verið fullur og sett niður á blað alls kyns hluti sem ég sé eftir og verst af öllu,,, sent það út í loftið án þess að getað tekið það' til baka.
Á móti má segja að blogg sé spegill sálarinnar og þegar maður getur bloggað hugunsarlaust þá speglar maður sína réttu hugsun. Sinn rétta mann. Ekki meyjuna sem setur ekki staf niður á blað nema það sé algerlega þaulhugsað.
Hvað sem er þá er ég að horfa á sjónvarpsstöð sem er ómerkt og ég held að sé Ínn og er að velta fyrir mér að mæta í Sundlaug Mosfellsbæjar klukkan 9 í fyrramálið í nudd og í framhaldi í andlega umhyggju með alls kyns andlegiu fólki.
Vona bara að Anna komi ekki allt of seint heim úr 50tugs afmæli .....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2009 | 16:45
Útiveran yndislega
Fór með Steina og Guðbirni í Þingvallavatn í gærkveldi og var úti í vatni til um það bil 24.00. Það blés hressilega á okkur en við létum ekki deigan síga heldur þrumuðum flugunum á hægri og vinstri. án mikils árangurs að vísu en Guðbjörn toppaði það með því að ná í 3ja punda gullfallegan urriða.
Við fengum okkur sushi með öllu og drukkum hvítvín með í fallegri laut og því örugglega einhverjir sem sáu okkur haldið að við værum hommar.
Ótrúlegt hvað það er endurnærandi að komast út í íslenska náttúru. Ég kom heim um kl. 1 um nótt þreyttur í líkama en hvíldur í sálinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2009 | 12:01
Ra
Sólguðinn yndislegi Ra er heldur betur í stuði þessa dagana og veitir hlýju og von inn í annars nöturlega tilveru Íslendinga. Skrítið hvað sólin lyftir skapinu til hærri hæða.
Ég er farinn á Þingvöll eftir vinnu með vinunum að njóta þessa yndislega dags.
Gleðilegt sumar enn á ný.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2009 | 12:17
Frábær helgi
Já sérdeilis frábær helgi að baki. Fór aleinn í Hafravatn á föstudagskvöldið með nýju Sage stöngina sem ég var að smíða. 10 ft stöng fyrir línu 6, frábær stöng. Náði að vígja hana þar sem ég fékk 1 urriða og 1 bleikju. Titti að vísu. Var úti í vatni í ca 3 tíma og var orðinn ansi loppinn á tánum í öndunarvöðlunum. Hvað leggur maður ekki á sig
Á laugardaginn gengum við Anna á Esjuna í frábæru veðri og hvílíkt útsýni af toppnum ! Fórum svo beint í júróvisíon partí til Ingu en Anna fór svo að syngja á listahátíð. Kom svo og sótti mig, sem betur fer
Sunnudagurinn fór í útiveru og veiðiskap með barnabörnunum (strákunum) en við tókum þátt í fjölskyldudegi Stangveiðifélagsins við Elliðavatn þar sem boðið var upp á pulsur, hoppukastala, Felix og Gunna o.s.frv. Æðislegur dagur. Fengum svo tengdó í mat í gærkveldi.
Ef einhver veit um lítinn, sparneytin og vel með farinn bíl á ca 100 þús þá látið mig vita. Anna hætt að vinna og vantar bíl.
Gleðilegt sumar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2009 | 09:16
Lof Malakoff
En það er hjóm eitt of fengi jafnvel viðurkenning Amnesti International miðað við að bjóða heiminum upp á að þurfa að hlusta á hinn óhemju heimska og sjálfumglaða kynni þeirra, Malakoff sjálfan ! Það eru pyntingar í beinni útsendingu og ætti með öllu að heyra undir Amnesti International.
Hvar í ósköpunum grófu þeir þennan ömurlega mann upp því það hljóta að vera ósköp sem koma slíkum leiðindaskarfi í heiminn. Hann man ekki einu sinni hvað með kynnirinn hans heitir, Natscha segir hann um leið og hann þefar af hárinu á henni þó hún heiti eitthvað allt annað. Hann hlítur að vera náfrændi Pútins eða jafnvel launsonur. Dívon eða hvað hann nú hét sem vann í fyrra er eins og skemmtilegur Einstein við hliðina á Malakoff.
Og hver skrifaði eiginlega handritið fyrir þau ? Ekki nóg með að heimurinn vissi ekkert hvort þau voru að segja brandara eða bara láta vaða á súðum þá var algerlega á hreinu að Malakoff vissi ekkert hvað hann var að segja á ensku. Örugglega einhver sagt honum að hann væri að leika í klámmynd og þetta væri bara allt í plati. Og að endingu það mætti halda að báðir kynnarnir væru nýkomnir frá Íslandi því hárið á þeim leit nákvæmlega eins út og á flestum Íslendingum undanfarna daga ...voosh..
Hann er svo leiðinlegur að ég fyrirgaf jafnvel alls kyns listamönnum sem komu fram í gærkveldi eins og t.d. frá Ungverjalandi þar sem þröngklæddur dansari söng Dance with me með þremur konum sem kunnu alls ekki að dansa en voru örugglega listamenn á einhverju öðru sviði eða annars konar dansarar.
Það eina sem er gott við að þessi hinsegin gleðiganga verði bönnuð er að þá þarf maður ekki að hafa neinar áhyggjur af því að Hollendingarnir syngi á laugardaginn því leiðinlegra lag er ekki fram borið í keppninni. Ekki nóg með að lagið sé lélegt heldur voru þeir ramm falskir þegar þeir sungu það. Ég veit vel hvað Hollendingar voru að reykja þegar þeir kusu þetta lag áfram. Löglega að vísu. Þeir voru í það minnsta ekki að drekka Heineken. Shine, shine ,shine, ég segi bara fine !
Fékk bakþanka þegar ég heyrði norsk-rússneska strákinn syngja ( og spila ?) norska lag ið sitt því flutningurinn var ekki nándar jafn góður og í vídeóinu. Sá að Geiri í Goldfinger var aðal styrktaraðili atriðsins frá Úkrainu þar sem dansararnir voru einmitt að reyna að syngja eitthvað í leiðinni. Fyrirgaf dúettinum frá Azerbaijan því annað þeirra gat að minnsta kosti sungið og þau komust jú áfram. Velti fyrir mér hvað Hulk var að gera í Spiderman búningi í flutningi Albönsku söngkonunnar en fattaði svo að hann hefur notað KRAFTINN því þau komust líka áfram og tók sérstaklega eftir hvað gríski guðinn var stressaður þegar hann fattaði að hann var kominn þarna til að syngja, ekki bara sýna sig. Hann var svo sem ekkert stressaður yfir úrslitunum því hann komst jú áfram á útlitinu einu saman. Hann heldur að úrslit sé sama og útlit, það er jú ansi líkt þegar maður pælir djúpt í því.
Skiptir ei máli hvort sungið sé vel,
Sannast hið forna að gott vinarþel,
Milli nágrannaþjóða þau hvort öðru bjóða
Alls kyns samninga og allt fer þá vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.5.2009 | 16:28
I say (V)
Er ekki möguleiki á að slíta bara stjórnamálasambandi við hin getulausa Gordon Brown því þetta hefur örugglega jafn lítið með bresku þjóðina að gera eins og íslenska þjóðin hefur með útrásarvíkingana að gera.
Í guðanna bænum lekið þessu í það minnsta til stjórnarandstöðunnar bresku svo þeir geti haft eitthvað skemmtilegt að að grínast með og hlæja.
![]() |
Hafa fengið nóg af Bretum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.5.2009 | 09:19
Flugustöngin mín
Í gærkveldi settist ég niður með kennaranum mínum honum Hjölla og hóf að smíða mína eigin flugustöng. Eða öllu heldur setja saman. Um er að ræða 10ft Sage Z-Axis (að ég held) fyrir línu 6. Þetta verður mín aðalstöng hvort sem um lax eða silungsveiði er að ræða, stöðuvatna eða straumvatna veiði.
Búinn að líma handfangið og hjólasætið á ásamt toppinum og binda 4 lykkjur á. Þetta er ótrúleg nákvæmnisvinna og mér var farið að verkja í augun af einbeitingu. Ætla að reyna að klára hana fyrir þar næstu helgi því þá er ég að fara í minn fyrsta alvöru veiðitúr norður í Laxá í Aðaldal.
Með slíka stöng að vopni þurfa norðlensku urriðarnir heldur betur að fara að vara sig þega ég mæti á svæðið.
Síðasti vinnudagurinn hjá Önnu minni í dag og að öllum líkindum heimsækjum við Ingu og Hjálmar í bústað í Reykjaskógi á morgun og verðum 1 - 2 nætur. Tek mér kannski frí á mánudag. Það er rooosalega langt síðan við höfum farið í sveitina og ég hlakka gríðarlega til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2009 | 12:07
Unaðsfagrir tónar og fyrsti flugufiskurinn
Ég fór í gærkveldi á tónleika Vox Feminae í Hafnarborg í Hafnarfirði og þvílíkur unaður ! Ég er til efins um að til sé flottari kvennakór í heiminum. Tilfinningin í söngnum er með eindæmum og allt sett upp á sjónrænan hátt til þess að áhorfendur geti lifað sig inn í sönginn. Arkitektinn að þessu samspili tóna og leiks og þessum tilfinningaþrungna söng er að sjálfsögðu Magga Pálma og það er afar grunnt í listamannin hjá henni. Jafnvel örgrunnt
Nokkrir kórfélagar sungu einsöng með kórnum og stóðu sig allar mjög vel en þó enginn eins vel og mín ektakvinna sem hreinlega fór á kostum í laginu Amarilla. Enda fékk ég hana ekki heim fyrr en um tvöleitið í nótt ennþá í þúsund fetum
Skrapp í Vífilstaðavatn í hádeginu í ca hálftíma í gær og viti menn. Ég náði í fyrsta flugufiskinn minn ca pund bleikju. Það er alltaf gott að vera búinn að taka fyrsta fiskinn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2009 | 09:25
Að hengja bakara fyrir smið ..
Hún Anna mín fékk mjög óvæntar fréttir í síðustu viku þegar hún var kölluð á fund hjá forráðamönnum fyrirtækisins sem hún vinnur hjá. Henni var sagt upp. Í hagræðingarskyni nota bene vegna minnkandi verkefna.
Þetta kom algerlega flatt upp á hana enda taldi hún sig einna öruggasta með sitt sæti í fyrirtækinu. Og af hverju ?
Jú, til dæmis af því að:
- Hún var að þjónusta alla aðra í fyrirtækinu, sá um símsvörunina og móttöku viðskiptavina og þannig alltaf með næg verkefni. Meðal annara verkefna nota bene
- Hún var búin að vera í hartnær 12 ár hjá fyrirtækinu, búin að gefa því sál sína og alltaf borið mikla virðingu fyrir því
- Í öll þessi 12 ár var hún aðal pepparinn, glaðværasta manneskjan og sú sem fór um allar hæðir þess til að stappa stáli í starfsmenn með smá vitleysisgangi. Sem einmitt skiptir lykilmáli í kreppunni í dag
- Aðal sprautan í öllum skemmtunum, búin að syngja einsöng mörgum sinnum fyrir fyrirtækið og jafnvel lána eiginmanninn sem veislustjóra á árshátíðum þess.
- Var andlit þess út á við og allir kúnnar hreinlega elskuðu hana enda ekki annað hægt
- Var elskuð af flestum innan fyrirtækisins
- Var örugglega með lægstu launin í fyrirtækinu fyrir utan skúringarkonuna
Já, meðal annars þess vegna er þetta lítt skiljanlegt og af því mér virðist gríðarlega grunnt hugsað. Fyrir fyrirtæki eins og þetta myndi borga sig að greiða einstakri manneskju eins og Önnu laun bara fyrir að vera eins og hún er og hafa jafn góð áhrif á starsfólkið og starfsandann eins og raun ber vitni. Þarna er bersýnilega að vera að hengja bakara fyrir smið.
Sem betur fer er hún einmitt jákvæð og lítur á þennan skell sem tækifæri frekar en annað. Hún er bara þannig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2009 | 12:02
Gleðigjafar
Í gær fékk ég að vera með báðum litlu dömunum mínu þeim Heklu Guðbjörgu og Ísold Emmu. Hekla eins og súmókappi með fellingar og spékoppa út um allt og Ísold svona lítil og nett. Hvað getur maður verið annað en ástfanginn af slíkum perlum ?
Hitti svo líka sætu strákana mín þá jökul og Úlfar og til að toppa það hitti ég ennfremur Anton hans Bóasar sem ég hef ekki séð allt of lengi. Vantaði bara gelluna hana Anitu til að toppa daginn.
Ég er heppinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)