Kvefpest

Það er ekki komið haust og ég er kominn með kvefpest. Hör í nös, hálsbólgu og hósta.Sick Að vísu á byrjunarstigi og ég ætla að vera duglegur að drekka heitt engifer vatn. Ég má ekki við því að þetta ágerist þar sem ég er nú einn í Víndeildinni og kemst ekki frá. Vonum það besta.

Einhvern veginn fannst mér samt haustlegt á að líta í morgun þegar ér kom út en vona að það sé bara í kollinum á mér. Við stefnum á að fara í Þórsmörk í tjaldútilegu um helgina með góðu fólki en eins og veðurspáin er þá verður líklega ekkert úr því. Þeir spá fínu veðri fyrir norðan og norðaustan en það er heldur langt fyrir eina helgi. Kannski skellir maður sér bara í Landmannahelli því þar á að vera ágætt veður. Kemur í ljós.


Stærra hús og stærri bíl ?

Já það liggur við að við þurfum að fara að huga að því að stækka verulega við okkur og ekki af því að við séum að stækka neitt sérstaklega heldur fjölskyldan.

Já, það er víst orðið opinbert núna og má segjast en við Anna eigum von á ekki bara einu barnabarni heldur tveimur því Andri og Erla eiga von á sínu fyrsta og Írisi og Óskar eiga von á sínu þriðja !!  Og það á sama tíma í byrjun febrúar á næsta ári. Greddan í þessum börnum mínum Wink

Kannski látum við bara núverandi aðstæður duga og verum bara rosalega skipulögð en ég get alveg viðurkennt það hér og nú að amma og afi eru svakalega spennt. Ekki býð ég nú í það ef það kemur stelpa því þá flippar Anna og dekrar hana upp úr skónum. Og hver veit nema ég eignist loksins nafna ? Heyrið þið það, Íris og Andri Angry

Afi.


Pallapúl

Á föstudaginn fékk ég lánaða háþrýstidælu og keypti hreinsiefni og viðarvörn á pallinn minn. Las mér til að ég þyrfti að skella hreinsiefninu á pallinn og smúla hann svo á eftir. Ég hafði ekki borið á hann í fyrra. Fór svo í þetta í blíðskaparveðri fyrir hádegi á laugardag. Þetta reyndist hins vegar hið mesta púl og ég þurfti, með aðstoð Önnu að taka hverja spýtu og háþrýstihreinsa hana. Þumlung fyrir þumlung. Bar síðan á pallinn í þynnkunni á sunnudagsmorgun.

Þynnkan stafaði af útskriftarveislu sem Íris hélt í flugleiðasalnum í Síðumúla. Þar var hörku fjör og við anna fórum síðust heim af gamla settinu. Unga fólkið var eitthvað lengur og það tók Írisi einhvern tíma að ná öllum út. En, vel heppnað partí.

Byrjaði síðan sunnudagsmorguninn eins og áður sagði með því að bera á pallinn og síðan fengum litlu snáðan henar Írisar lánaði og fórum með þá í sund. Úlfar Feyr er orðinn mikil afastrákur og fór bara að gráta þegar ég lét hann frá mér. Ekki leiðinlegt ..InLove Anna var að vísu ekki eins hrifin af því.


Náttúran heillar

Ég hætti í fyrra fallinu í vinunni í gær, keypti 2 bakka af köldum mat, annars vegar sushi handa mér og hins vegar salat með kjúklingi handa Önnu og hélt í áttina til Krísuvíkur. Ég fór með allar veiðigræjurnar og Anna skildi mig eftir við Kleifarvatn og hún hélt svo áfram til Grindavíkur til að heimsækja Önnu Siggu frænku sína.

Ég var búinn að heyra sögur af stórfiskum bæði urriðum og bleikjum sem veiðst höfðu í Kleifarvatni undanfarið og setti saman flugustöngina, kaststöngina og jafnvel beitustöngina. Allt prófaði ég og eftirtekjan var heldur rýr. Missti 3 bleikjur og náði einni. Var þó með meiri afla en þeir sem voru að veiða í kringum mig. Ég reyndar sá bíla út um allt og menn sem örugglega höfðu frétt það sama og ég voru hringinn í kringum vatnið. Kannski var ég bara á vitlausum stað ...

Anna kom svo aftur kl. 20 og við settumst í laut og opnuðum litla hvítvínsflösku ( sem reyndist ónýt ) og snæddum kvöldmatinn. Sérlega kósí.  Héldum svo heim á leið eftir vel heppnaða náttúruferð. Þarna er ægifagurt og vel þess virði að kíkja í bíltúr og fara í göngutúr.

Það verður kósíkvöld í kvöld ( að ég held ... ). Maður verður líika stundum að slaka á Sleeping 

Á morgun er svo hörku fjör en þá förum við í útskriftarpartí hjá stjórnmálafræðingnum henni Írisi minni. Djús og djamm Shocking


Kónguló, kónguló vísaðu mér á berjamó

Skrítið nafn kónguló og ekki batnar það við fleirtöluna, kóngulær. Það hefur eitthvað verið að þeim sem bjó til þetta nafn.  Það hefur hins vegar verið mikið að þeim aðila sem fann upp kóngulær yfirhöfuð ! Þetta eru ótrúlega ljót og leiðinleg dýr sem gera ekkert annað en að skapa vandræði.

Þegar ég gekk inn í svefnherbergi í gærkveldi, hálfnakinn að sjálfsögðu, fannst mér eins og ég hefði gengið í gegnum kóngulóarvef, í það minnsta einn þráð en var ekki viss. Vadr aðeins að stússa inni í herbergi og fór svo aftur út og viti menn, mér fannst ég ganga aftur í gegnum vefinn. Nóta bene ég er mjöööög viðkvæmur fyrir slíku og finn t.d. fyrir rykkornum ef ég geng yfir þau. Mér varð nú ekki um sel og sá fyrir mér að ég myndi vakna um morguninn umvafinn kóngulóarvef, margstunginn og væri jafnvel orðinn að kóngulóarmanninum.  Gæti mig jafnvel hvergi hrært í slímugum vefnum. Crying  Ég fór því á stjá að leita að hugsanlegu kvikindi sem væri að spinna svikulan vef sinn inni í svefnherberginu mínu. Ég leitaði undir rúmi, í fatahrúgunni á stólnum en fann ekkert óvenjulegt. Þegar ég kom svo ánægður út úr svefnherberginu sé ég kvikindið á harðahlaupum inn á bað, stórt loðið og ógeðslegt. Ég var snöggur að þrífa klósettpappír og náði henni á hlaupum. Opnaði svo klósettsetuna og nú er kvikindið að synda baksund einhver staðar úti í miðju Atlandshafi veltandi fyrir sér hvað kom fyrir það. Eitt er víst, kóngulóin valdi rangan mann að kljást við Devil

Fórum í grill til Ingu og Hjálmars í gærkveldi og áttum notalega stund með þeim og Siggu H.

spiderman-in-web-0013

 


Framhalds framhalds ferðasaga

Við létum nú svo sem ekki deigan síga þegar heim var komið því strax daginn eftir að við komum heim, á sunnudeginum fórum við að heimsækja Ingu Klemmu og Hjálmar í bústað í Efsta Dal og gistum þar í blíðskaparveðri eina nótt.

Viorum svo heima 1 dag og fórum svo af stað í tjaldferðalag hringinn um landið með Steina, siggu H, Ingu Klemmu og Hjálmari. Lögðum af stað á þriðjudagskvöldið og héldum norður til Akureyrar. gistum þar í fínni íbúð sem Blaðamannfélagið á í 2 nætur. Við strákarnir fórum að veiða á miðvikudeginum í Ljósavatn meðan stelpurnar spókuðu sig á Akureyri. Fengum nokkra titti sem dugðu í sashimi um kvöldið.

Héldum svo austur á bóginn á fimmtudeginum og stoppuðum í jarðböðunum við Mývatn. Þetta er glæsilegur staður og þeim mývetningum til sóma. Glampandi sól var og þvílíkt útsýni ! Héldum svo áfram á Egilstaði þar sem við ætluðum að tjalda í Atlavík.  En stundum fara hlutirnir ekki alveg eins og maður vill því á leiðinni var okkur öllum boðið í mat hjá Rannveigu vinkonu stelpnanna á Egilsstöðum. Hún er nýflutt inn í glæsilegt parhús og búin að innrétta það mjög fallega. Það var náttúrulega bjór og rauðvín og 25 mínútna akstur inn í Atlavík þannig að við urðum að gista hjá henni. Andri kom til okkar þá um kvöldið en hann býr á Egilstöðum þessa stundina og tjáði okkur að okkur væri boðið í mat hjá tengdó ( kærastan hans hún Erla er frá Egilsstöðum ) kvöldið eftir. Sem þýddi náttúrulega meiri bjór og rauðvín og enn var 25 mín akstur inn í Atlavík þannig að enn var gist hjá Rannveigu á Egilsstöðum. Sem betur fer er hún ótrúlega gestrisin manneskja. Þá var kominn laugardagur og tjaldið góða enn óhreift í bílnum. Keyrðum heim á leið og gistum á Hótel Klaustri hjá Kalla vini mínum sem reyndist okkur betri en enginn þar sem mjög erfitt var að fá gistingu. Það hellirigndi nótabene þannig að tjaldið fékk að hvíla sig áfram.

Skemmst frá því að segja að við komum heim á sunnudegi úr tjaldferðalaginu án þess að taka upp tjaldið. Fúlt.  Ég var búinn að sjá fyrir mér að sitja fyrir utan tjaldið með tjaldborðið og tjaldstólana, grilla á kolum, skvetta aðeins í sig og fara í frisbí.

En , stundum fara hlutirnir ekki alveg eins og maður ætlar eða vill.

Allt hefur þó sinn gang og við kynntumst vel henni Rannveigu sem fór með okkur eins og hvítvoðunga og stjanaði við okkur. Við hittum í fyrsta sinn foreldra Erlu þau Grétar og Völu og nutum einstakrar gestrisni þeirra í mat og drykk. Það var því verulega gaman að dvelja á Egilsstöðum og kynnast nýju fólki.

Við tjöldum bara seinna en þó ekki næstu helgi því þá er útskriftarveisla hjá Írisi minni. Hörku fjör !


Framhalds ferðasaga

Kominn í vinnu eftir 3ja vikna frí og nú kemur framhaldið:

Já útsýnið í Chianti er ólýsanlegt og og ég hefði gefið mikið fyrir að vera með alvöru myndavél með linsu því þessar litlu digital vélar ná engri fjarlægð. Við vorum með lítinn garð með borði og stólum fyrir utan íbúðina okkar og þar borðuðum við alltaf morgunmat saman. Fórum svo gjarnan í smá sólbað við sundlaugina sem var steinsnar frá okkur og fengum okkur svo hádegismat áður en haldið var af stað í skoðunarferðir um nágrennið.

Það er allt í mjög lítilli fjarlægð frá okkur því við vorum mjög miðsvæðis. Flórens er kannski lengsti bitinn enda slepptum við því að fara þangað ( 1,5 klst ) Við heimsóttum Castellina nokkrum sinnum en það er smábær ( hilltown ) aðeins um 4 km frá okkur. Þar fundum við með smá hjálp góðan veitingastað sem við fórum tvisvar á.  Heitir La Torre.

Tókum síðan einn dag í að heimsækja og skoða San Gimiagno sem er þekktasti " hill " bærinn þeirra. San Gimiagno á sér mikla og merkilega sögu og er hvað merkilegastur fyrir turnana sína sem er að ég held 11 talsins í dag. Fyrir mörgum öldum síðan voru þeir hvorki fleirri né færri en 80 talsins og voru merki um dramblæti íbúana þar sem kepptust um að reisa sér hæsta turninn. Það er mjög skemmtilegt að ganga um bæinn og skoða öll gömlu húsin, þröngu göturnar, kirkjurnar og fallegu minjagripa verslanirnar. Það var að vísu mjög heitt þarna eins og reyndar allan tímann í Chianti.

Á mánudagskvöldið fórum við öll á einn flottasta veitingastað sem til er í Chianti en hann var einmitt í Castellina. Þessi staður heitir Albergaccio og er með eina michelin stjörnu. Fengum okkur set menu og áttum yndislega stund. Maturinn var frábær, ekkert öfgakenndur en gerði mikið úr hefbundnum réttum héraðsins.

María og Ásthildur voru með okkur fram á miðvikudagsmorgun en þá keyrðum við þeim til Siena þar sem þær tóku lest til Trento. ( reyndar 3 lestir því þær þurftu að skipta tvisvar um lest ) Það var mikill grátur við viðskilnaðinn enda höfðum við átt frábærar stundir saman. Ásthildur, þrátt fyrir að vera aðeins 10 ára, hafði gaman af öllu sem okkur datt í hug og kvartaði lítið. Þær mæðgur eru yndislegar og ekki vandamál að vera  með þeim.

Sama morgun hittum við Francesco Riviera, okkar mann hjá Fonterutoli og hann tók okkur í túr um vínekrurnar. Keyrði eins og vitleysingur á jeppa sem mátti muna sinn fífil fegri og ég var fram í og var enn hræddari en Anna ! Fórum svo og smökkuðum vínin þeirra frá þremur svæðum þ.e. Chianti, Maremma og Sikiley. Þetta voru engin smá vín og við fengum svo að taka þau með okkur til baka. Skoðuðum svo vínkjallarann þeirra sem er splunkunýr og þvílíkur kjallari ! Örugglega sá flottasti í Chianti. Þegar við vorum svo aftur komin heim í íbúð þá héldum við áfram að smakka vínin og fengum svo að taka 2 þeirra með okkur á veitingastaðinn þeirra í Fonterutoli. Úr þessu varð því smá jíbbí hjá okkur Shocking

Vöknuðum samt tiltölulega snemma á fimmtudegi og fórum til Siena. Siena er ægifögur borg og við gengum hana fram og til baka í brakandi hita og skoðuðum það sem markverðast var. Vorum því heldur þreitt þegar við komum til baka þann daginn.

Fórum svo í almennings sundlaug morguninn eftir sem var í Castellina og sóluðum okkur aðeins. Ef einhverjum finnst dýrt í sund á Íslandi bíðið bara því það kostaði 7 evrur í þessa laug og svo þurfti að borga 2,5 eur fyrir bekkinn ! Fórum svo seinni partinn til Greve sem er enn einn smá bærinn. Skoðuðum hann og borðuðum þar kvöldmat. Síðan heim á leið og pökkuðum um kvöldið.

Héldum svo af stað kl. 8.30 um morgunin og keyrðum alla leið til Mílanó sem tók okkur um 4,5 klst. Allt gekk samkvæmt áætlun og við vorum lent í Keflavík um kl. 20 um kvöldið. Mikið var nú gott að sofa í kulda í eigin rúmi ...

Þessi ferð var æðisleg að öllu leiti og ég mana alla að heimsækja Toscana og sér í lagi Chianti. Það sem líka lyfti ferðinni upp var félagsskapurinn við þær mæðgur meðan þær voru með okkur.

Bella Toscana !


Ferðasaga

Loksins er ég tengdur en hef þó gert nokkrar tilraunir á Ítalíu til að blogga en gat aldrei sent bloggið frá mér. Ég er enn í fríi og fer norður á morgun ásamt Siggu h, Steina, Hjálmari og Ingu klemmu og hled svo austur á bóginn. hér ætla ég þó að stikla á stóru um feðina:

Við lenntum í mílanó á réttum tíma eða um 10.30 um kvöld og rétt náðum að sækja bílaleigubílin. Ég tók Fiat Bravo sem reyndist hinn ágætisti bíll. f´+orum beint á hótel við flugvöllinn og Elsa leiðbeindi okkur þangað ( Elsa er navigatorinn okkar sem ég tók með - Garmin )

Fórum svo snema af stað til La Spezia og tók ferðin ekki nema um 1,5 tíma, anna hafði ekki einu sinni tíma til að vera hrædd Wink einhverra hluta vegna var gatan sem hótelið okkar var við ekki inn í Elsu þannig að það var ekki þrautalaust að finna það. Fundum það á endanum og vorum komin í göngutúr niður í miðbæ um leið. Svo sem ekkert merkilegur bær nema fyrir þær sakir að hann er vel staðsettur til að fara í sglingu um Cinque Terre. Dagin eftir keyrðum við til Pisa til að sækja þær yndislegu mæðgur, Maríu Björk og Ásthildi. Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar við hittumst á flugvellinum í Pisa og svo skoðum við skakka turnin o.fl áður en við héldum til bakatil La Spezia.

Dagin eftir tékkuðum við okkur út og fórum í bát snemma um morguninn til að skoða Cinque Terre sem er eitt af furðum veraldar. Ægifögur lítil þorp sem hanga nánast í lausu lofti í fjallshlíðum. Veðrið var frábært 32°hiti og glampandi sól. Við fórum úr bátnum, í Monterosso og dvöldum þar í 2 tíma, drukkum hvítvín og lögðumst á ströndina. Þessi ferð var algert æði og fegurðin mikil. Þegar í land var komið um kl. 17 þá ókum við beint niður til baðstrandabæjarins Viareggio til þess að sóla okkur innan um fína og flotta fólkið. Það áttum við 2 góða daga, á ströndinni, í göngutúrum og snæddum ljúffengan ítalskan mat. Létum okkur meira að segja hafa það að fá okkur fisk.

Tékkupðum okkur út á laugardagsmorgni og héldum til Chianti, nánar tiltekið Fonterutoli. Heimsóttum í leiðinni fæðingarbæ Puccinis, Lucca og dvöldum þar í ógurlegum hita í dálítinn tíma. Þegar við komum svo til Fonterutoli þá áttum við ekki orð. Fegurðin sem við okkur blasti er ólýsanleg og íbúðin sem við fengum var eins og úr gamalli bíómynd. Allt í gömlum stíl og andinn var slíkur að Ásthildur var óþreytandi við að leita að leynidyrum og þess háttar. Hún fann t.d. ofan í gömlu kofforti handskrifaðar skýrslubækur frá því 18hundruð og eitthvað ! Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hvernig var að vera þarna, gamla fólkið sitjandi fyrir utan litlu íbúðirnar sínar alltaf brosandi og bjóðandi góðan daginn, bon giorno eða góða kvöldið buon sera. Okkur fannst öllum eins og við værum komin í Paradís og útsýnið, ó mæ god !

En, nóg í bili, þarf að fara heim að pakka niður í töskur því nú skal Ísland heimsótt. Meira seinna.


Fögur er hlíðin, ég fer fet

Já á morgun ætlum við að fara þó nokkur fet í sveitina, alla leið í Fljótshlíðina. Hvar Gunnar og Njáll skiptust bróðurlega á skoðunum við skoðunarbræður sína forðum undir vökulum augum Bergþóru. Við ætlum sum sagt að heimsækja Eyvindarmúla og Hildu systir og Óla.

Þar ætlar mín fjölskylda og hluti af fjölskyldu Ernu að hittast, grilla saman og hafa gaman. Gerum allt of lítið af slíku og hittumst yfir höfuð allt of sjaldan. Ég viðurkenni það svo sem að ég hefði nú alveg verið til í að vera heima og undirbúa mig vel fyrir ferðina sem hefst á mánudag, enda er ég meyja. En hey, lífið er yndislegt og allt of stutt til að eyða því í ekki neitt.

Þarf reyndar að fara heim snemma á sunnudagsmorgun þar sem ég þarf að syngja í áttræðisafmæli Denna sem haldið er í Salnum í Kópavogi. Það verður líka gaman og hann á það alveg skilið karlinn.

Vona svo að ég hafi tíma til að pakka á sunnudagskvöldið.... því .... nú eru einungis 3 dagar þangað  til O Sole Mio hljómar í eyrum mér  .....

 

 


Það sem skiptir fólk máli

Í fréttum í gær var hræðileg stjórnunartíð Mugabes og fylgisveina í Simbabve og er með ólíkindum að svona glæpamaður skuli komast upp með það sem hann gerir.  Hvar er alþjóðasamfélagið nú ? Hvar er Bush sem alltaf er að hjálpa lítilmagnanum ? Hvar er fólk almennt til að hafa áhyggjur af þessum málum ?

Jú, ég get svo sem sagt ykkur það. Ég sá líka nokkur viðtöl við sérfræðinga í ísbjarnarmálum, umhverfissinna innanlands sen erlendis og þingmenn og tók ísbjarnarblúsin mun meira pláss en morðin í Simbabve.  Fólk var endalaust að velta sér upp úr því hvort hefði nú mátt bjarga Birnu gömlu og spá í ættfræði hennar. Nú reið mest á því að setja saman aðgerðaráætlun ef ske kynni að annar aldinn ísbjörn myndi nú reka á land á Íslandi.

Fólk er nú ekkert sérstaklega að setja saman aðgerðaráætlun um hvernig koma megi fólkinu í Simbabve til hjálpar eða hvernig koma megi Mugabe fyrir kattarnef ( nú eða ísbjarnarnef sem yrði mun kærkomnara )

Neibb. Ísbjörninn skiptir miklu meira máli nú. Eina sem ég sé eftir þegar vesalings Birnan var skotin er að að skotið skildi ekki notað á Mugabe og set ég hér með saman aðgerðaáætlun ef við finnum nú annan ísbjörn:

- nálgast skuli ísbjörninn varlega og gæta þess að reita hann ekki til reiði ....strax.

- fanga skuli ísbjörninn og setja hann í þar til gert búr.

- fljúga skuli með ísbjörninn til Simbabve og gefa Mugabe að gjöf frá Íslenska Ríkinu.

- passa sig á því að skilyrða ísbjörninn á leiðinni með því að sýna honum myndir af Mugabe og klípa hann alltaf í punginn á sama tíma.

- þá verður ísbjörninn reiður þegar hann sér Mugabe ......

Einfalt en árangursríkt !

Tutti Frutti ( allir ávextir ) eftir 4 daga !

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband