Færsluflokkur: Bloggar
15.12.2008 | 12:40
Handverks helgi
Þetta var sannkölluð handverks helgi hjá okkur Önnu. Fórum á laugardaginn á handverksmarkað í Hekluhúsinu við Suðurlandsbraut og þvílíkur markaður ! Þarna var hver listmunurinn og flíkin öðrum fegurri og glæsilegt að sjá listagáfu Íslendinga framkallast í slíkri mynd. Þarna er aldeilis sproti til framtíðar fyrir okkur Íslendinga.
Fórum svo í jólaþorpið í Hafnarfirði þar sem alls kyns handverk var til staðar líka og fengum okkur svo jólaglögg í Thors Gallerí. Þar ráða ríkjum miklar listakonur í málverki, keramiki og fatnaði svo eitthvað sé nefnt. Glæsileg hönnun og erfitt að fara þaðan út án þess að kaupa sér eitthvað.
Fórum í hádeginu á sunnudag í Norræna Húsið er þar er alltaf eitthvað að gerast í hverju hádegi ( 12.30 ) fram, að jólum. Hinir ýmsu listamenn sem þar koma fram og enginn veit hver það er fyrr en hann mætir. Björk á t.d. eftir að mæta. Á sunnudaginn voru það Dúo Stemma sem voru með gjörning sem aðallega var ætlaður litlu börnunum. Í Dúó Stemmu eru Herdís Anna Jónsdóttir og Steef van Oosterhout, hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þau voru hreint út sagt æðisleg, svo innileg og barnsleg að unun var að horfa á. Fluttu ekta íslenska handverksleikrit og hljóðfærin sem notuð voru komu mest megnis úr eldhúsinu heima. Gaman hefði verið að vera með lillana okkar tvo.
Um kvöldið kom svo Andri í mat og ég var með villtan fasana í matinn. Ekta handverksmatur þar sem ég dúllaði mér við hvert smáatriði og útkoman ágæt.
Náðum inn á milli að kaupa nokkrar jólagjafir, strauja þvott, gera laufabrauð o.s.frv....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2008 | 12:45
Hear no evil, see no evil ..
Það hlítur að vera að flestir Íslendingar hafi gengið um með mörke briller undangengna mánuði því svo virðist sem enginn geri sér enn grein fyrir því að það er að skella á kreppa. Ég neita að trúa því að flestum sé það ekki enn ljóst að við Íslendingar þurftum að taka til okkar þvílíkar skuldir og að við ( Ríkissjóður ) þurfum einhvern veginn að standa undir þeim. Ríkissjóður verður með einum eða öðrum hætti að ná sér í aukið fjármagn og það hlítur að bitna á einhverjum. Vona að menn geri sér grein fyrir því. Kreppa er ekki bara eitthvað tískuorð sem snertir mann ekki.
Hvort ætli sé betra að minnka þjónustu í heilbrigðisgeiranum og hækka gjöldin þar eða hækka gjöld á áfengi og tóbaki ? Hvort ætli sé betra að minnka greiðslur til aldraðra, sjúkra eða fatlaðra eða hækka álögur á bensín og olíur ?
Það þýðir ekkert að vera jákvæður og skilningsríkur í orði ef það er ekki líka á borði.
Hækkun gjalda áfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2008 | 08:55
Jólastressið
Fyrir ekki svo löngu síðan og frekar langt í burtu þá var jólasveinninn að gera sig kláran fyrir sitt árlega ferðalag til byggða. En undirbúningurinn gekk allur á aftur fótunum. Fjórir af álfunum hans voru veikir og lærlings álfarnir, sem þurftu auðvitað að leysa hina af, bjuggu ekki leikföngin til nógu hratt svo sveinki var farinn að finna fyrir smá stressi á að standast ekki tímaáætlun.
Til að slá aðeins á stressið þá fer hann í vínskápinn sinn og ætlar að fá sér einn sterkan út í kaffið til að athuga hvort hann nái ekki að róa sig niður en sér þá að álfarnir hans höfðu komist í vínskápinn og það var ekki dropi eftir. Við að sjá það þá magnast stressið upp úr öllu valdi og hann missir kaffibollan sinn í gólfið þar sem hann brotnar í spað.
Hann fer og sækir kúst en sér þá að mýs hafa étið öll stráin á hausnum á kústnum svo hann kom ekki að neinu gagni.
Þetta var nú ekki til að bæta skapið hjá sveinka og þegar hann gerði sig tilbúinn til að öskra, í þeirri von að losna við eitthvað af jólastressinu, þá hringir dyrabjallan. Hann fer til dyra og sér þar lítinn engil með stórt jólatré undir arminum.
Engillinn segir við sveinka: " Hvar vilt þú að ég setji þetta tré, feiti?"
Og þannig kom það til að það er hafður engill efst á jólatrénu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2008 | 12:31
Nýr hörkuspennandi tölvuleikur
Tölvuleikir er eitthvað sem ég get alls ekki skilið og finnst þeir í raun hræðileg uppfinning. Hvað er að foreldrum sem leyfa börnunum sínum að spila töluleiki sem ganga eingöngu út á að murka lífið úr nágrannanum á sem blóðugasta hátt. Hvernig geta foreldrar talið sér trú um að slíkt sé réttlætanlegt, svari nú hver fyrir sig.
Einn er sá leikur sem ég hef heyrt um og heitir Grand Theft Auto. Mér skilst að hann gangi út á það að drepa saklausa vegfarendur hvar sem í þá næst og sigurvegarinn er sá sem drepur sem flesta, að sjálfsögðu. Nú er ég að þróa nýjan tölvuleik sem er keimlíkur þessum leik, en ekki alveg eins blóðugur...enn sem komið er í það minnsta.
Leikurinn heitir Grand Theft Bankers, gerist á Íslandi og er í raun tvíþættur.
Annars vegar þurfa þátttekendur að fara í svokallaða banka útrás og opna alls kyns hættulega og leyndardómafulla reikninga í sem flestum löndum. Sigurvegarinn er sá sem getur stráð sem mestu ryki í augu sem flestra og fengið þá til að opna innlánsreikninga hjá honum. Sérstakur bónus er veittur fyrir þá sem geta fengið líknarsamtök, sveitastjórnir o.þ.h til að opna reikninga og hámarksbónus er veittur til Þeirra sem fá sjálfa lögregluna í viðkomandi landi til að falla í gryfjuna. Er enn að vinna í að setja upp bónuskerfið en það getur einmitt verið margslungið.
Hins vegar gengur leikurinn út á að geta platað sem flesta á Íslandi til að vita ekki neitt, fylgjast ekkert með og gefa óafvitandi ábyrgðir sínar fyrir misgjörðunum erlendis. Sérstakir bónusar eru einnig veittir í þessum hluta og bónusar fást t.d. fyrir að plata þingmenn, ráðherra og fjármálaeftirlit. Er ekki enn búinn að gera upp við mig hvort bónus verði veittur fyrir að plata Davíð ...það er kannski ekkert svo erfitt. Hins vegar gæti stærsti bónusinn verið fyrir þann sem getur fengið forsætisráðherra til að reka Davíð ....
Menn geta valið sér ýmsar persónur eins og t.d. Björgthor ( sem er rammur af afli og lyft getur björgum ) Jónás ( sem alltaf hefur ás uppi í erminni ) eða hann Nes ( sem alls staðar finnur fjögurra blaða smára ) og Bjármann ( sem hleypur hraðar en vindurinn )
Hægt verður að fara í alls kyns fjársjóðsleit í leiknum t.d. að finna stærstu reikningana á Cayman eyjum, stærstu einkaþoturnar eða lystisnekkjurnar o.s.frv.
Ég er náttúrulega enn að þróa þennan leik en er strax kominn með annan í hugann, svona einhvers konar framhaldsleik. Hann gæti gengið út á að finna þessa menn víðsvegar um heiminn og og fara með þá eins og þeir fóru með almenning og gert er við vegfarandur í Grand Theft Auto.
Djísus, ég er strax orðinn spenntur ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.12.2008 | 09:21
Eins og konurnar í Írak
Var að hlusta á útvarpið í morgun þar sem einhver Halla Gunnarsdóttir var að lýsa ferð sinni til Írans þar sem hún var að rannsaka hagi íranskra kvenna. Hún tók sérstaklega fram að ekki væri eðlislægur munur á stöðu kvenna á Íslandi og Íran heldur stigsmunur ..
Halló ! Meðan hún var þarna úti sá hún þrisvar sinnum framan í andlit kvenna og var ekki einu sinni viss um hvort þær konur voru frá Íran. Réttur þeirra var enginn og algerlega fótum troðinn, máttu ekki klæða sig í neitt nema slæður sem sýnd ekki líkamannn og einungis mátti sjá augun í þeim.
Stigsmunur ...
Ekki veit ég hvort hún var svona mikill feministi eða hvað en ekki eykur svona málflutningur nú trúverðugleika kvenréttindabaráttu á Íslandi. Að líkja stöðu íslenskra kvenna við stöðu íranskra kvenna er móðgun við íranskar konur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 16:39
Helgin, úff
Á föstudagskvöldið fór ég á Panorama með nokkrum í kringum vinnuna, át þar góðan mat og drakk góð vín. Fór snemma heim enda þreyttur eftir vikuna.
Á laugardaginn fór ég ásamt Steina og Guðbirni að heimsækja Stulla á afmælisdaginn. Hitti þar Sölva og kærustu og saman skáluðum við fyrir kallinum. Fór svo heim til Steina hvar upphófst þvílík matargerð. Grafinn lax í forrétt ( sem Guðbjörn veiddi og verkaði ), heitreyktar og pönnusteiktar svartsfuglsbringur í millirétt ( reyktar og steiktar á staðnum ) og síðan villigæs í aðalrétt. Með þessu voru drukkin góð vín. Eftirrétturinn var síðan ostar og portvín með. Kominn heim sæmilega edrú um kl. 2 um nóttina. Villibráðarveisla eins og hún gerist best.
Einhverra hluta vegna var ég þreyttur á sunnudaginn en náði þó að ryksuga og skúra.
Allt var þetta án Önnu Birgittu sem var að gera garðinn frægan í Berlín á meðan. Fæ hana heim seint í kvöld og hlakka mikið til, er ekkert mikið fyrir að sofa einn .......
Næsta helgi verður sko þvílíkt róleg .....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2008 | 14:15
Snáðinn með hörpuna
Á morgun er þjóðhátíðardagur Finna og í gamla daga var alltaf flaggað á öllum strætisvögnum vegna þess. Veit ekki hvernig það er í dag.
Í gamla daga var líka lítill snáði í Bústaðahverfinu sem átti afmæli á sama degi og var þess fullviss að verið væri að flagga eingöngu út af honum. Þessi litli snáði hafði enda alltaf ríkt ímyndunarafl og kom því á prent í texta eða ljóðsaformi, á léreft eða með því að syngja. Hann var snillingur í þessu öllu.
Í dag er hann með hörpu í fanginu syngjandi djúpri bassaröddu fyrir alla þá sem nenna að hlusta. Segjandi þeim sögur af ömmum þeirra sem hann var með á Sigurvoninni í gamla daga ...gleðjandi alla í kringum sig.
Eins og hann gerði alltaf
Til hamingju með daginn elsku kallinn minn. Ég sakna þín alltaf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2008 | 10:00
Hættuleg heimska
Ég er náttúrulega frekar tregur og skil stundum ekki vora stjórnmálamenn. Hvernig Geir Haarde getur enn haldið því fram að Davíð sé ekkert að setja út á sig er mér algerlega hulið.
Davíð segir það berum orðum að hann hafi marg ítrekað varað stjórnarmenn/konur við því að allt væri að fara til fjandans og þeir skellt skollaeyrum við því. Þess vegna sé þetta allt þeim að kenna en ekki Davíð. Nú hafa nokkrir ráðherrar sagt að Davíð hafi ekki varað þá við og því liggur í augum uppi að hann hefur varað Geir Haarde við.
Hvernig í ósköpunum getur þá Geir haldið því fram að Davíð sé ekki að gagnrýna hann ? Hvernig geta fréttamenn "ekki" fengið Geir til að viðurkenna annað hvort að Davíð sé að ljúga eða að allt sé honum að kenna.
Spurningin sem fréttmenn eiga að spyrja er tvöföld:
Geir Harði, ég er með 2 spurningar: Er þetta rétt hjá Davíð að hann hafi varað ykkur við hruninu eða er hann að ljúga ? Svarið hlítur að vera að hann sé ekki að ljúga enda þyrfti Geir þá að setja hann af.
Í framhaldi er seinni spurningin þá einföld: Geir, er þetta þá ekki þér og þínum að kenna þar sem þið skelltuð skollaeyrum við aðvörunum ?
Ég trúi því tæplega að Geir sé svo heimskur að hann sjái ekki hið auðsjáanlega eins og allir aðrir og ef svo er....þá erum við í vondum málum. Það er hættuleg heimska fyrir Íslendinga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.12.2008 | 12:46
Tortímandinn
Hvað er líkt með ofangreindum og Davíð Oddsyni ? Fyrir utan náttúrulega " I´ll be back " Velti því fyrir sér hver sem vill.
Fyrir utan endalausar fréttir af ömurlegheitum þá hef ég haft það alveg ágætt, þakka ykkur fyrir. Erum að dútla við að skreyta dálítið hjá okkur á kvöldin og Anna er óðum að ná sér eftir að hafa verið Lazarus. Enda ekki seinna vænna þar sem hún fer til Berlínar á morgun með kórnum sínum og dagskráin er slík að einungis fullfrískir einstaklingar munu lifa hana af .
Ég ætla svo sem ekki að slá slöku við um helgina heldur því annað kvöld er mér boðið á Panorama veitingahúsið með góðu fólki og laugardaginn hitti ég nokkra vini mína í villibráðarveislu hjá Steina.
Á laugardaginn ætla ég svo í heimsókn til vinar míns sem á afmæli þennan dag og spjalla örlítið. Verður að vísu tölvert eintal en hjá því verður ekki komist. Stulli minn á afmæli á morgun
María vinkona kíkti aðeins í heimsókn í vikunni en því miður missti ég af henni en Anna fékk að njóta þess. Gott að eiga slíka vini og oft hugsa ég um hversu heppinn ég er að eiga jafn marga góða vini og raun ber vitni.
Það styttist óðum í jólin og þvílík jól ! Stóru branda jól hvorki meira né minna. Enda erum við dugleg að fá okkur portvínstár á kvöldin og láta okkur hlakka til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2008 | 09:13
Dómstólar landsins sameinist !
Við hljótum að finna einhvern stjórnlagadómstól hér á Íslandi til þess að gera það sama og í Taílandi þ.e. að leysa hreinlega upp stjórnina. Lausnin fundin og við þurfum ekkert að bíða eftir því að einhver taki ábyrgð, gæti orðið ansi löng bið. Í leiðinni getum við látið leysa upp stjórnmálaflokkana ( alla nota bene ), fjármálaeftirlit og hinar ýmsu eftirlitsstofnanir sem brugðust skyldu sinni.
Leysa upp alla þá sem leyst hafa vind og þaðan af meira upp á bak undanfarnar vikur.
Ekki spurning.
Stjórn Taílands dæmd frá völdum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)